Þriðjud. 28. júlí
Brottför úr Reykjavík
Gist undir jökli.
Miðvikud. 29. júlí
Ekin fjarðarleiðin til Seyðisfjarðar.
Stopp í Djúpavogi, á Franska safninu Fáskrúðsfirði
Gist á Seyðisfirði.
Fimmtud. 30. júlí.
- 08:30. Innritun í ferjuna Norrænu. Siglt frá Seyðisfirði kl.10:30 og komið til Þórshafnar kl. 03:00 föstudaginn 31. júlí.
Föstud. 31. júlí.
Lagst að bryggju í Þórshöfn kl. 03:00 farið beint í gistingu í Þórshöfn. Um hádegisbil verður síðbúinn ,,morgunverður” áður en haldið er út í daginn. Göngutúr um gamla hluta höfuðstaðarins. Drögum að okkur ylm sögunnar og njótum fegurðar gatna og húsa. Skoðum m.a. Tinganes, Heinesen safnið, Norræna Húsið, Skansin. Endum okkar rölt í Listasavn Foroya.
Laugard. 1. ágúst.
Eftir morgunverð verður farið í dagsferð um Streymoy, Þórshöfn, Kirkjubær, Tjørnuvík.
Sunnud. 2. ágúst.
Frjáls dagur í Þórshöfn. Valfrjáls ferð til Suðureyjar (Siglt 2 klst hvora leið). Tvøroyri, Vágur á Suðurey.
Mánud. 3. ágúst.
Að loknum morgunverði höldum við til Klaksvíkur (74 km). Eftir að við höfum skráð okkur á hotel Verður spankulerað um bæjinn og m.a. leitað að ,,Taxa John”. Hver er hann, eða hver var hann?
Þriðjud. 4. ágúst.
Ekið til Götu Í slóð Þrándar í Götutu úr Færeyingasögu. Hverjir voru þeir Þrándur í Götu og Sigmundur Brestisson? Þjóðlegur kvöldverður í Klaksvík eða …?
Miðvikud. 5. ágúst.
Innritun kl. 16:00 í Norrænu. Siglt frá Þórshöfn kl 18:00 áleiðis til Seyðisfjarðar.
Fimmtud. 6. ágúst
Kl. 08:30. Komið til Seyðisfjarðar. Ekið til Mývatns. Hugmynd að fara til Húsavíkur og í Sjóböðin, eða bara að hafa það huggulegt á Húsavík.
Föstud. 7. ágúst
Ekið til Reykjavíkur með góðu stoppi á Akureyri. Á leiðinni er hægt að heimsækja staði eins og Laufás (myndum þá keyra Dalsmynni til Akureyrar), Jólahúsið eða aðra staði í Eyjafjarðarsveit.
Komið til Reykjavíkur fyrir kvöldmat, ferð lýkur.
Verð fyrir einstakling í tvíbýli 228.000 kr.
Verð fyrir einstakling í einbýli 278.000 kr.
Innifalið:
- Rútuferð samkvæmt ferðalýsingu, innanlands, RVK-SEY-RVK og Færeyjum.
- Gisting 3 nætur á Íslandi, með morgunverði.
- Siglingin með Norrænu fram og til baka í 2m klefa inn (gluggalaus)
- Gisting í tveggja manna herbergi í Þórshöfn í 4 nætur með morgunverði.
- Gisting í tveggja manna herbergi í 2 nætur í Klaksvík með morgunverði.
Þeir sem kjósa að taka flugið:
Verðið verður eitthvað lægra en það ræðst af flugverði.
Föstud. 31. júlí
Flogið frá Keflavík – Vágar kl. 10:30-13:00. Lent í Vágar. Ekið til Þórshafnar ca. 46 km. Innskáning á hótel og haldið í léttan göngutúr um gamla hluta höfuðstaðarins. Drögum að okkur ylm sögunnar og njótum fegurðar gatna og húsa. Skoðum m.a. Tinganes, Heinesen safnið, Norræna Húsið, Skansin. Endum okkar rölt í Listasavn Foroya. …
Miðvikud. 05. ágúst. Ekið um hádegi til Vágar. Innritun kl. 13:00 . Flogið kl. 14:55. Lending í Keflavík kl. 15:25.